• Náðarstund
map
Náðarstund_1
Náðarstund_2
Náðarstund_3

Frekari ráðgjöf

Arinbjörn Jóhannsson
Brekkulækur
531 Hvammstangi
Sími: 451-2938
Netfang: booking@abbi-island.is
  • Náðarstund fyrir norðan

    Harmsaga Agnesar Magnúsdóttur

    Með bókina Náðarstund eftir ástralska rithöfundinn Hannah Kent í farteskinu er ekið um þær slóðir þar sem Agnes Magnúsdóttir dvaldi, ýmist sem vinnuhjú frá fermingju eða fangi, á meðan hún beið aftöku sinnar. Bókina samdi Hannah eftir að hafa dvalið sem skiptinemi á Norðurlandi. Við skoðum sögusviðið í Langadal, Vatnsdal, Vesturhópi og á Vatnsnesi. Það er litríkur hópur fólks sem þarna kemur við sögu og býr vítt og breitt í Húnavatnssýslum. Um þau er sannarlega forvitnilegt að fá að vita meira og það gerum við í þessari ferð. Þar ber fyrst að nefna Agnesi Magnúsdóttur, Friðrik Sigurðsson frá Katadal og Sigríði Guðmundsdóttur, bústýru á Illugastöðum, sem öll voru dæmd til dauða fyrir morðið á Natani Ketilssyni og Pétri Jónssyni. En fjöldi annarra þektra persóna eru hluti af þessari sögu, svo sem Björn Blöndal, sýslumaður og Rósa Guðmundsdóttir, skáldkona og ljósmóðir. Mikið hefur verið skrifað og skrafað um hina örlagaríku atburði sem leiddu til síðustu aftöku á Íslandi í Vatnsdalshólunum í Húnavatnssýslu þann 12. janúar árið 1830. Um þá hafa verið samin leikrit og ljóð, skáldsögur og sagnfræðirit, sönglög og kvikmynd.

  • Ferðarlýsing Náðarstund

    1. Dagur2. Dagur3. Dagur
    1. Dagur, Föstudagur: Reykjavík – Langadalur – Vatnsdalur
    Brottför: Kl. 9:00 með rútu frá bensinstöð N1 á Ártunshöfða við Norðurlandsveg í norðurátt . Ekið sem leið liggur norður Holtavöruheiði að Brekkulæk í Miðfirði þar sem hádegishressing bíður hópsins. Ekið að Geitaskarði í Langadal og síðan um söguslóðir í Vatnsdal. Þar bjó sýslumaðurinn í Hvammi og þar fæddist Agnes á Flögu, en dvaldist sem barn og síðar fangi á Kornsá. Á heimleiðinni er stoppað við aftökustaðinn í Vatnsdalshólunum. Kvöldverður og sögustund að Brekkulæk. (h,k)
    2. Dagur, Laugardagur: Vatnsnes
    Eftir morgunverð bíður okkar hringferð um Vatnsnesið. Fyrst er ekið að Illugastöðum þar sem Natan Ketilsson bjó. Hluti af smiðju hans stendur þar enn uppi. Sömuleiðis eru þar bæjarrústir frá 19. öld. Þaðan ekið í Katadal og að Tjarnarkirkju þar sem jarðneskum leifum Agnesar og Friðriks var komið fyrir. Hádegishressing á leiðinni. Einnig stoppað við kirkjuna á Breiðabólstað og hjá Stóru-Borg í Vesturhópi. Kvöldverður og kvöldvaka að Brekkulæk. (m,n,k)
    3. Dagur, Sunnudagur: Miðfjörður – Reykjavík
    Við kveðjum Brekkulæk eftir morgunverðinn og ökum nú hring um Miðfjörð. Í kirkjugarðinum að Efra-Núpi í Núpsdal er leiði Skáld-Rósu. Og þarna gefst tækifæri til að heyra nánar um líf þeirrar einstök merkiskonu. Við komum einnig við á Bjargi en þar er minnismerki eftir Halldór Pétursson. Á leiðinni til Reykjavíkur er komið við í Landnámssetrinu í Borgarnesi. Komið til Reykjavíkur um kl 17:00(m)
  • Fyrirspurn

    Vinsamlegast tilgreinið ferð, dagsetningu og personulegar upplýsingar og sendíð okkur tölvupóst á:booking@abbi-island.is

Erfiðleikastig

Dagsetning

01.05. – 03.05.26

Verð

80.000 ISK á mann

Fjölði þátttakenda

lágmark 8
hámark 16

Innifalið & Upplýsingar

3 dagar, 2 nætur, akstur, gisting í uppbúnum rúmum í gistihúsi að Brekkulæk í Miðfirði, þar sem rekin hefur verið ferðaþjónustu í rúm 40 ár. 2 x morgunmatur, 1 x hádegishressing, 1x nesti og 2 x kvöldverður, sögufræðsla og fararstjórn. Nauðsýnlegur búnaður: Hlý utanyfirföt og góðir skór, etv göngustafir, drykkjarflaska .Leiðsögumaður: Sigrún Valbergsdóttir.
m=morgunmatur; h=hádegismatur; k= kvöldmatur; n= nesti.