VOR Í SVEITINNI
Nátturuskoðunarferð – 5 dagur – 4 nætur – sveitin, fuglar, náttúra
Eftir langan vetur vaknar töfrandi landið og náttúran aftur til lífs – fallegir lækir, líflegir fuglar, nýfædd lömb. Í þessari ferð verður dvalið 3 nætur á Brekkulæk í Miðfirði, grónu landbúnaðarhéraði þar sem gestgjafarnir búa með 70 hrossum og einum hundi. Síðustu nóttina er gist í Reykhólasveitinni, einni að náttúruperlum landsins. Einn af hápunktum ferðarinnar er heimsókn að Höfnum á Skagan, þar sem æðarbóndinn Vignir kynnir okkur fyrir heillandi umhverfi sínu og fer með okkur á báti til, lítillar eyjar; fuglaparadísar með þúsund fugla lundabyggð og stóru æðarvarpi. Við förum einnig um Vatnsnes sem er hálendur skagi milli Miðjfarðar og Húnafjarðar, þekkt fyrir sín selalátur. Einnig munum við aka út Strandir enda síðan þessa ferð á Reykhólum. Á þessum stöðum er hægt að sjá stórann hluta af fuglafánu Íslands. Við munum ferðast með lítilli rútu, með báti og gangandi og slaka á í heitum pottum þegar færi gefst. Einnig eru ágætis tækifæri til að taka ljósmyndir af fuglum.
Dagssetning: 27.05. – 31.05.2021 (fimmtud,- mánud. 4 nætur) Verð: 88.000,- ISK á þátttakenda
1.Dagur, fimmtud.:
Reykjavík – Brekkulækur
Farið með rútu á okkar vegum frá Reykjavík. Brottför BSí kl.11.00, Veitingastaðnum Sprengisandi kl. 11.15 og verðum við komin á Brekkulæk um kl. 15.00 Á leiðinni norður stutt stopp við fossinn Glanna þar sem með nokkurri heppni verðum var við minnsta fugl Íslands. Hressing við komuna að Brekkulæk. Síðan smá gönguferð þar sem við kynnumst nærumhverfinu og heilsum upp á vorboðana. Kvöldmatur og gisting á Brekkulæk þar sem við gistum í 3 nætur. (k)
2.Dagur, föstud.:
Arnarvatnsheiði – Vatnsnes
Vaknað við fuglasöng. Heiðlóur, stelkar, hrossagaukar, spóar, þúfutitlingar og skógarþrestir bjóða góðan dag. Morgun-matur. Síðan ekið inn til heiða og gengin spölur með gljúfri Austurár þar sem oft verpa í nábýli fálkar og heiðargæsir. Léttur hádegismatur á Brekkulæk. Ekið fyrir Vatnsnes og svipast um eftir sel og skoðaður heitur hver í flæðarmálinu. Lengra stopp hjá drangnum Hvítserk en umhverfis hann er mjög skemmtilegt vistkerfi þar sem, kría, æðarfugl, tjaldur, fýll og rita verpa í miklu nábýli. (m, h, k)
3.Dagur, laugard.:
Skagi
Í dag er ferðinni heitið norður á Skaga mið viðkomu í Vatnsdal og hinni fornu verstöð Kálfhamarsvík. Á vegi okkar verða: himbrimar, toppendur, óðinshanar sand-erlur, sendlinga, rauðbrystingur, tildrur og lóuþrælar. Við mælum okkur mót við æðarbóndann og þúsund–þjala-smiðinn Vigni bónda í Höfnum á Skaga. Hápunktur dagsins verður, ef veður leyfir bátsferð með Vigni út í eyju sem er ca. 100 m. frá landi. Á þessari smáeyju eru stórt æðarvarp og lundabyggð. (m,n,k)
4.Dagur, sunnud.:
Brekkulækur – Strandir – Reykhólar
Ekið fyrir Hrútafjörð og norður strandir og yfir Þröskulda að Reykhólum. Stutt stopp í Broddanesi og á Hólmavík. Hér verða á vegi okkar flórgoðar, straumendur og toppendur. Gist í gistihúsi á Reykhólum. (m, k)
5.Dagur,mánud.:
Reykhólar – Reykjavík
Að loknum morgunmat förum við í ca. 4 t. gönguferð um einstaka fuglaparadís Reykhóla. Hér verpa m.a. mikill fjöldi hávella, skúfanda, dugganda og einkum lóma. Síðan ekið af stað til Reykjavíkur um Dali og Bröttubrekku. Að sjálfsögðu svipumst við um eftir örnum þegar ekið um Gilsfjörð. Komið til Reykjavíkur ca. kl. 19.00 (m)
Innifalið: Allur akstur, gisting í uppabúnum rúmum í tveggjamanna herbergjum, eins manns herbergi gegn gjaldi (5.000kr.) Fæði eins og tiltekið er: m=morgunnmatur; h = hádegismatur; k = kvöldmatur; n = nesti.
Góðir gönguskór, útivistar fatnaður, etv göngu stafír, regnföt, bakpoki, sundfatnaður, brúsi, nestisbox.
Fararstjóri: Arinbjörn Jóhannsson ferðabóndi á Brekkulæk sem er öllum hnútum kunnugur í sveitinni. Fuglaáhugamaður og náttúruunnandi frá æsku. Arinbjörn hefur skipulagt og verið fararstjóri í fuglaskoðunarferðum fyrir útlendinga í 25 ár. m.a. séð um fuglaskoðunarferðir fyrir stór þýsk náttúruverndar samtök NABU (Natur Bund)